Velkomin í Vinaminnis-þanka
Dagsetning
22. mars 2010
05.12.2007 21:36:07 / vinaminni

nýja síðan.

 

Nýja síðan mín er  www.123.is/vinaminni

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 23:10:21 / vinaminni

bl. 093

Það leit út fyrir að "game over" hefði skollið á þegar heimsóknirnar fóru yfir 50 þús. svo ég hélt á tímabili að ég blog.central væri Musso.

En nú lítur þetta út fyrir að vera vitleysa hjá mér sem betur fer,

Ég hef samt ákveðið að færa mig yfir á myndasíðuna mína sem er 123.is/vinaminni

Þannig að nýja slóðin er www.123.is/vinaminni

Takk fyrir mig hér.

Hilsen frá Þóru Björk sem komst loks inn á blog.central til að kveðja.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 20:25:30 / vinaminni

Gestur

bl.092

 

Hver verður gestur nr. 50 þúsund?

Ég ætla að vísa á ykkur á þessa síður svo ég geti aðeins grobbað mig. www.123.is/vinaminni  og velja blogg.

Hilsen frá Þóru Björk sem bíður spennt eftir gestinum nr. 50 þús.

 

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 09:54:18 / vinaminni

helgi

bl.091

Þessa stundina eru krakkarnir í 9 og 10 bekk, að keppa í Legó hönnunarkeppnin
í Öskju við Sturlugötu, þeir sem hafa áhuga endilega lítið við og þau heita
Latajace Krowy.

 

Þau eiga að keppa kl. 10.40 og aftur kl. 13.15 og svo eru þau með skemmtiatriði milli kl. 11 og 12.30

Ég nenni ekki að blogga meira er að reyna að horfa á þetta á netinu en það gegnur frekar illa. Slóðin er http://firstlego.is/

Hilsen frá Þóru Björk sem fór á Lög ungafólksins í Egilsbúð í gærkvöldi.

 

E.S.  Ég óska Eríki Má og hans liði til hamingju með sigurinn í Legóinu.


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 16:04:39 / vinaminni

Prinsessan.

Bl.090

Prinsessan í Vinaminni á afmæli í dag.  Hún er orðin 19 ára.  Hún er á leiðinni norður með rútu á þessari stundu.  Hún hefur alltaf verið í löngu helgarfríi á afmælinu sínu síðan hún byrjaði í MA en þetta er fyrsti dagurinn sem hún varð að yfirgefa samkvæmð á sjálfan afmælisdaginn og fara norður.

Hún réð hvað yrði í matinn og var ekki lengi að ákveða sig, reykt ýsa með góðu feitinni, sem samanstendur af soðnum eggjum söxuðum eins og í salat, hvítlauk, lauk og bráðnu smjöri/smjörlíki, ásamt öllu sem tilheyrir ásamt grilluðum laxi fyrir þá sem ekki þola reykta ýsu.

Þetta frí er búið að vera í lengra lagi hjá henni þar sem hún barðist með okkur austur á þriðjudagskvöld.

Á fimmtudagskvöld lenti ég aftur í leiðinda veðri á Fagradal og hálku eftir það, er ég fór ásamt Öllu upp í Hérað á frábært náskeið hjá Sollu Eiríks (á Grænum kosti).   Ég mæli að fara til hennar á námskeið.

Hilsen frá Þóru Björk sem hugsar um allan matinn um leið og hún dembir sér í óhollustuna.


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 21:00:17 / vinaminni

Frí

Bl.069

Ég brá mér í helgarferð með fjölskyldunni s.l. helgi. Fórum við á Akureyri og dvöldum þar í góðu yfirlæti í orlofsíbúð. Skruppum líka til Húsavíkur að heimsækja kunningjahjón okkar sem þar búa og kíkja á nýja húsið þeirra. Þá komumst við að því að við höfum ekki heimsótt þau í 20 ár, eða síðan síðla hausts 1987 og þau eru búin að búa í húsinu í ca 18 ár og síðan eru fædd 4 börn samtals hjá oss.

Svo í gær þegar við fórum heim, biðum við eftir Ernu til að stela henni degi fyrr úr skólanum vegan veðurútlits. En hún var að koma heim í langt helgarfrí. Þess vegna lögðum við ekki af stað heim fyrr en 15:45 og vorum komin heim 10:15, meðalhraði ca 40 km/klst, snjóbylur og rok alla leiðina og þurftum við að stoppa við flestar stikur og kanna þær áður en lengra var haldið - allavega uppi á fjöllum. Þegar við komum á malarkaflann uppi á Jökuldalsheiði þá voru stikurnar svo drullugar að glitmerkin gerðu ekkert gagn. Þá var það bara handayfirlagning sem dugði.

Bensínkóngarnir tóku sinn toll og þurftum við að taka bensín á Egilsstöðum til að halda áfram. En það var í lagi, það var í leiðinni. En ég hélt að þegar við komum í göngin og gátum aukið hraðann í 70 að við yrðum tekin fyrir ofhraðan akstur, því mér fannst við fara svo hratt.

Ég get svo svarið fyrir það að ef ég hefið ekki vitað af nýju hraðahindrunni sem er hér fyrir utan þorpið hefið ég ekið á staurinn sem er á miðjum veginum, svona ör sem segir hvert skal aka. Það var svo mikill snjór á honum að hann sást ekki í myrkrinu. En heim komst ég án þess að festa bílinn, keyra útaf, og allt þar á milli.

Hilsen frá Þóru Björk með starandi augu.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 20:34:32 / vinaminni

Vogur

Bl.068

Ég held að mér veitti ekki af að fara á Vog þessa dagana. Annars er eitt gott við þetta allt saman, að það hvessir svo hressilega á milli skúra að ég þorna um leið og síðustu droparnir falla. Þess vegna held ég mig á milli skúra.

Haldið þið að mér hafi ekki dottið til hugar að steikja kleinur í gærkvöldi en svo þegar ég var búinn að gera klárt fyrir steikingu, uppgötvaði ég að ég hefði gleymt að setja olíu í uppskriftina svo ég skellti í aðra uppskrift og steikti báðar. Þar sem ég var hér uppi í eldhúsi og með allt galopið út, allar dyr og alla glugga, haldið þið að það hafi bara ekki dottið í dúnalogn úti á meðan og engin gegnumtrekkur svo það þurfti að kalla á reykkafara til að reyktæma húsið. Heimilsfólkið var farið að kallast á til að vita hver var hvar. En auðvitað urðu olíulausu kleinurnar seigari. Þetta vissuð þið ekki.

Ég læt þetta duga í bili, auk þess virðist mér ellibragur vera komin í þetta. En um leið óska ég Áslaugu til hamingju með morgundaginn, þá er hún loksins búin að ná mér.

Hilsen frá Þóru Björk sem drekkur kaffi og etur kleinur.


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 16:51:01 / vinaminni

Endilega skoðið

bl. 067

 

Endilega skoðið þessar myndir frá kynningarviku RkÍ, þessir fremstu sem þið sjáið eru Friðrik Júlíus og Haraldur Sigurjón og smellið svo til skoða myndir: Slóðin er: http://redcross.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?name=rki_myndir_ur_starfinu

Það er að segja ef þið hafið áhuga.

Hilsen frá þóru Björk sem ætlar á tónleika með Herði Torfa í kvöld á Brekkunni kl. 20:30.


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 22:10:10 / vinaminni

Maður getur ekki vitað allt

bl.066

 

Ég var að koma heim úr vinnunni, fór aðeins að hjálpa til niður á Brekku.

Þá kom inn nýaðfluttur Stöðfirðingur og fór að spjalla við okkur, hann sagði að hann færi að fá ungan frænda sinni í heimsókn sem byggi í bænum og hann væri búin að panta að fá pizzu á Brekkunni, hann fengi þær ekki betri (strákurinn hafði komið í haust líka).

Þá kom upp í hugann minn atburður sem átti sér stað þegar við hjónaleysin rákum veitingastað í sama húsi undir nafninu Svarti folinn. Sagan hljóma svona: 

Sumarið 1999 komu ferðamenn til okkar eftir að hafa fengið sér sundsprett í lauginni hérna. Fólkið var frekar svangt og svolítið pirrað - það voru amman, afinn, dóttirin, tengdasonurinn og þrjú börn. Þau báðu um matseðilinn, lásu hann vel og vandlega og spurðu svo með mæðutón hve lengi ég væri að baka pizzur og ég sagði þeim það og enn mæðulegri sögðu þau, við ætlum að fá bla – bla pizzur.

Þegar þau voru að verða búin að borða datt þessi setning af vörum þeirra og líklega gleymi ég henni seint:

„Þetta eru bara bestu pizzur sem við höfum fengið, ekki vissum við að hægt væri að búa til svona góðar pizzur úti á landi.“

Hilsen frá Þóru Björk sem lætur gamlar setningar detta niður tröppurnar.


» 19 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 18:06:53 / vinaminni

Vikan

bl. 065

Ég ætla að gera enn eina tilraun, nánar tiltekið þá sjöttu, til að blogga en blog central hendir mér út í kuldann um leið og ég ætla að vista.

Það er kynningarvika hjá Rauða krossinum en ég byrjaði þessa viku með stæl.  Á mánudagsmorguninn, um áttaleytið, fór ég út í skóla með Rauða kross poka til að kynna deildina; morgunsólin skein og veðrið var yndislegt, ég bauð krökkunum góðan daginn hægri  vinstri er þau voru að tínast í skólan.  Ég var á nýtísku skóm, svona croks, þar sem ég labbaði að þessum líka flottu, þykku, nýlökkuðum trétröppunum.  Er ég steig í þrepið spilaði ég upp  “aftur“ fótunum og geistist á leifturhraða niður allar tröppurnar, og ég get svo svarið fyrir það að ég hef aldrei verið svona snögg að fá lit.  Það varð tröppunum til happs að þær eru þykkar eins og ég sagði áðan, annars væru þær spænir í dag.

En þá vitið þið það.  Ef þið viljið vera snögg að taka lit, notið þá morgunsólina.

Við skulum athuga hvort þetta kemst inn á bloggið.

Hilsen frá Þóru Björk sem skrapp í passamyndatöku í morgun.

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 08:56:26 / vinaminni

11.10

bl.064

Ég sig hér við eldhúsborðið og sólin er svo lágt á lofti að hvernig sem ég sný mér blindast ég af henni. En þar fyrir utan líður mér eins og ég sé í miðju hagléli, þar sem höglin eru svo stór að þau bráðna ekki heldur rotna. Til að útskýra þetta betur þá er staðan þannig að sólin skín skært og er lágt á lofti og stóru gluggarnir á innanverðu húsinu virðast ekki birtast í augum fuglanna þannig að þeir eru að fljúga í umvörpum á þá hjá mér. Og hljóðin sem ég heyri eru, dum, dum, dum, en flestir þeirra lifa þetta af sem betur fer. Hrista aðeins hausinn og fljúga svo í burtu.

 

En ég held ég segi eins og konan sagði forðum "ég er farin heim að baka" nema hvað, ég er heima.

 

Hilsen frá Þóru Björk sem horfið inn í eldhús og hugsar sitt.


» 16 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 08:40:56 / vinaminni

70 ára

bl. o63

Ég vil byrja á því að óska Hauki Jónssyni til hamingju með daginn en hann er 70 ára í dag. Fyrir þá sem ekki vita er hann pabbi (fóstri) Björgvins.

Svo í gærkvöldi um kl. 23.30 fengum við sms frá Boggu Jónu og co sem sagði okkur að aðgerðin væri búinn og allt hefði gengið vel. Það var mikill léttir og góðar fréttir. Fyrir þá sem ekki vita þá er slóðin www.blog.central.is/-boston Og svona eftirá þá sér maður hvað hún Bogga mín er bjartsýn, hún sendi sms í minn síma en allir aðrir hefðu sent það í Björgvins síma. Ég er búin að passa mig voða vel og hef haft rafmagn á símanum alveg í heila viku.

En ég óska öllum til hamingju með daginn.

Hilsen frá Þóru Björk sem andar léttar eins og allir aðrir Stöðfirðingar nær og fjær.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 16:10:08 / vinaminni

Tiltekt.

Bl.062

 

Þar kom að því, hennti öllum körlunum mínum út og fór  að taka til.  En hvort það er heilabúið eða húsið á bara eftir að koma í ljós.  

Ég er svöng og ég nenni ekki að elda handa mér einni, það er allt í lagi ég hef góðan forða.

Endilega kíkið á Gugga vin okkar slóðin er   www.blog.central.is/-boston

 

Hilsen frá Þóru Björk sem setur allt draslið í einn haug.

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 21:14:57 / vinaminni

Kona

 

Bl.061

 

Ég hef alltaf vitað að konur eru mikilvægar en ég fékk það staðfest í dag. Þannig er mál með vexti, að í dag fékk ég innheimtuseðil inn um lúguna hjá mér, sem er nú ekki talið í frásögu færandi, nema að ég var ekki sú sem vann allar millurnar í víkingalottóinu og rauk út í banka og greiddi seðilinn, heldur var það bara þannig að hann var á mínu nafni.

Það var svo söm allt í lagi, nema hvað það var verið að rukka fyrir fæði í grunnskólanum og Björgvin og strákarnir eru í fæði þar, ekki ég. Og seðillinn var stílaður á mig.

Er þetta kannski inni í Olweus eineltisáætlunni, að skilja ekki útundan eða er ég svona traustvekjandi?

Hilsen frá Þóru Björk sem fær að borga reikninga.


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 19:25:44 / vinaminni

Gallerí Snærós

bl. 060

Ég var að koma af opnun Grafíksetursins hjá Sólrúnu og Rikka.  Þau opnuðu í leiðinni myndlistarsýningu í stækkuðu galleríi en ég ákvað að skoða hana síðar því það var svolítið troðið þar núna.

Þetta er alveg frábært hjá þeim

Ég óska ykkur, Sólrún og Rikki, innilega til hamingju með þetta framtak og ég hvet alla til að kíkja til þeirra á meðan sýninginn er opin.

 

Hilsen frá Þóru Björk sem er hæst ánægð með þetta framtak.

Sjá líka hérna.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti